ATH: UPPSELT Á TÓNLISTARHÁTÍÐ 2023 – Engir miðar seldir við hurð!
Staðan á miðasölu 8.7.2023:
Helgarpassar – uppselt
Laugardagur Stakt kvöld – uppselt
ATH: Engir miðar seldir við hurð!
Miðaverð
Forsöluverð aðeins: 13.900 kr. / Almennt miðaverð: 15.900 kr.
Stakt kvöld í forsölu: 8.900 kr. / Almennt miðaverð: 9.900 kr.
Athugið, forsölu lýkur 3. júlí 2023.
Upplýsingar um fyrirkomulag
- Í kaupferli þarf að skrá nöfn og kennitölur allra handhafa miða
- Eftir kaup fær kaupandi senda rafræna miða með QR kóða
- Gegn framvísun rafræna miðans samhliða skilríkjum fá hátíðargestir armbönd á hátíðarsvæði
- Armbönd eru sett á handhafa á hátíðarsvæði, ekki er hægt að fá armbönd afhent í lausu
- Hátíðarhaldarar áskilja sér rétt til að óska eftir framvísun skilríkja hvenær sem er á meðan hátíð stendur
- Miðar og armbönd einstaklinga undir 18 ára aldri verða gerð ógild og verða ekki endurgreidd
- Ekki er hægt að breyta nöfnum á rafrænum miðum
- Hægt er að fara fram á endurgreiðslu á miðakaupum sem gerð hafa verið í gegnum vefsíðu Kótelettunar í allt að 14 daga frá kaupum. Þetta á hinsvegar ekki við um beiðnir um endurgreiðslur sem berast þegar minna en 14 dagar eru í auglýstan viðburð.
Dagskrá Kótelettunnar Music Festival verður kynnt á Facebook fram að hátíðardegi.
Hlökkum til að sjá þig á Kótelettunni 2023!