Kótelettan 2026

Kótelettan Music Festival verður haldið dagana 10. og 11. júlí 2026.

ATH. 18 ára aldurstakmark er á Kótelettuna MUSIC Festival

Miðasala fer eingöngu fram á netinu. Aðeins hægt að kaupa eina tegund miða í hverri pöntun. Hámark 6 miðar í hverja pöntun.

 

UPPLÝSINGAR

Miðaverð

Helgarpassi
3. apríl – 2. maí: 17.990 kr.
3. maí – 18. júní: 18.990 kr.
19. júní – 11. júlí: 20.990 kr.

Stakt kvöld – fer í sölu 1. júní í takmörkuðu magni
3. maí – 18. júní: 11.990 kr.
Frá og með 19. júní: 13.990 kr.

Upplýsingar um fyrirkomulag

  • Í kaupferli þarf að skrá nöfn og kennitölur allra handhafa miða
  • Eftir kaup fær kaupandi senda rafræna miða með QR kóða
  • Gegn framvísun rafræna miðans samhliða skilríkjum fá hátíðargestir armbönd á hátíðarsvæði
  • Gild skilríki: Ísland.is appið, ökuskírteini, nafnskírteini og vegabréf
  • Armbönd eru sett á handhafa á hátíðarsvæði, ekki er hægt að fá armbönd afhent í lausu
  • Hátíðarhaldarar áskilja sér rétt til að óska eftir framvísun skilríkja hvenær sem er á meðan hátíð stendur
  • Miðar og armbönd einstaklinga undir 18 ára aldri verða gerð ógild og verða ekki endurgreidd
  • Ekki er hægt að breyta nöfnum á rafrænum miðum
  • Hægt er að fara fram á endurgreiðslu á miðakaupum sem gerð hafa verið í gegnum vefsíðu Kótelettunar í allt að 14 daga frá kaupum. Þetta á hinsvegar ekki við um beiðnir um endurgreiðslur sem berast þegar minna en 14 dagar eru í auglýstan viðburð.

Dagskrá Kótelettunnar Music Festival verður kynnt á Instagram og Facebook fram að hátíð.
Hlökkum til að sjá þig á Kótelettunni 2026!