Skilmálar

ATHUGIÐ – 18 ÁRA ALDURSTAKMARK Á TÓNLISTARHÁTÍÐ KÓTELETTUNNAR

Með því að kaupa miða á Kótelettuna, þá samþykkir þú einnig skilmála okkar.

  • Vinsamlega athugaðu miðana þína, hvort réttar upplýsingar komi þar fram. Ekki er alltaf hægt að laga mistök við miðakaup eftir að gengið hefur verið frá greiðslu.
  • Eftir að þú hefur keypt miða hjá kotelettan.is, í gegnum netið, hefur þú 14 daga frá miðakaupum til þess að falla frá kaupunum og óska eftir endurgreiðslu á miðanum hjá kotelettan.is, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga. Ef viðburður sá sem keyptur er miði á er haldinn innan 14 daga frá miðakaupum eða skriflegri beiðni um endurgreiðslu átt þú hins vegar í engum tilvikum rétt á endurgreiðslu eða rétt til þess að skipta miðanum fyrir annan viðburð, sbr. 10. gr. áðurnefndra laga, nema í þeim tilvikum er viðburður fellur niður.
  • Miðinn þinn eða miðar verða samstundis gerðir ÓGILDIR ef þeir eru endurseldir eða BOÐNIR TIL SÖLU.
  • Miðar á viðburðinn verða sendir í tölvupósti þegar gegnið hefur verið frá greiðslu. Einnig má nálgast miðana á vefsíðunni kotelettan.is undir mínar síður.
  • Ekki er tekin ábyrgð á ef að viðburður fellur niður vegna óviðráðanlegra orsaka eins og t.d náttúruhamfara, óveðurs eða ófærðar.
  • Aðgöngumiði á hátíðarsvæðið tryggir ekki öruggar ferðir í samgöngum. Miði fæst ekki endurgreiddur falli niður ferðir hjá samgönguaðilum.
  • Ef keyptur miði er áframseldur með fjárhagslegum hagnaði fyrir einhvern annan en aðila sem tengist viðburði beint, áskilur kotelettan.is sér rétt til þess að ógilda miðann og neita handhafa inngöngu á viðburð.
  • Seljandi miða eða aðstandendur viðburðar taka ekki á sig aukna ábyrgð en leiðir af lögum s.s. vegna meiðsla og annars tjóns sem kaupandi verður fyrir á viðburði.
  • Aðstandendur viðburðar og kotelettan.is taka enga ábyrgð á einkamunum eiganda miða á meðan viðburði stendur.
  • Með því að samþykkja skilmálana leyfir þú myndartökur á og við tónleikasvæði sem nota má til markaðsetningar eða annara nota.
  • Dagsetning og tímasetning viðburða gæti breyst án fyrirvara.
  • Til þess að miði sé gildur þarf miðakaupandi ávallt að geta sýnt eftirfarandi, þar á meðal þegar mætir til að fá armbönd eða passa afhentann á hátíðina:
    • Miðann eða miðana (útprentaðan eða í síma).
    • Debet- eða kreditkortið sem var notað í kaupferlinu eins og kemur fram á bókunarstaðfestingu
    • Bókunarstaðfestingu (sem send er sem email við kaup).
    • Gilt skilríki með mynd sem passar við nafnið/kt. á bókunarstaðfestingunni og kredit/debet kortinu.
  • Ég veiti kotelettan.is leyfi til að geyma persónurekjanlegar upplýsingar um miðakaupin mín út ágúst ár hvert. Upplýsingar þessar verða ekki afhentar þriðja aðila. Kotelettan.is geymir ekki kreditkorta upplýsingar sem gefnar eru við kaup á miðum, greiðslur fara í gegnum öruggt vefsvæði Borgunar.
  • Kotelettan.is leggur ríka áherslu á öryggi og trúnað þegar um er að ræða upplýsingar sem snerta einstaklinga í viðskiptum við fyrirtækið og brýnir fyrir starfsmönnum að halda þann trúnað. Brot á trúnaðarskyldu varðar áminningu og/eða uppsögn. Meðferð persónuupplýsinga kotelettan.is er í samræmi við ákvæði laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
  • Með því að skrá netfangið og símanúmer þitt í kaupferlinu samþykkir þú að fá senda tölvupósta/SMS frá Viðburðastofu Suðurlands. Upplýsingar um afskráningu eru neðst í póstum sem eru sendir í markaðstilgangi.
  • Viðburðastofa Suðurlands ehf. er söluaðili miða á kotelettan.is kt. 501220-0350 heimilisfang Hrísmýri 6, 800 Selfoss. Símanúmer er 4-800-100. Vörukaup þessi eru í samræmi við íslenska lög og rísi mál vegna þeirra er það rekið fyrir Héraðsdóm Suðurlands.
  • Fyrirspurnir varðandi miðakaup skal senda á info@kotelettan.is og láta númer pöntunar fylgja með sé spurt um miðakaup sem þegar hafa verið gerð.
Scroll to Top