Kótelettan 2025

Kótelettan Music Festival verður haldið dagana 11. til 12. júlí 2025.

ATH. 18 ára aldurstakmark er á Kótelettuna MUSIC Festival

Miðasala fer eingöngu fram á netinu.

UPPLÝSINGAR

Miðaverð

Forsala helgarpassa: 16.990 kr. (ATH: Takmarkaður fjöldi miða í forsölu til 3. apríl)
Helgarpassi: 18.990 kr.
Stakt kvöld: 11.990 kr. (takmarkað magn verður í boði)

Upplýsingar um fyrirkomulag

  • Í kaupferli þarf að skrá nöfn og kennitölur allra handhafa miða
  • Eftir kaup fær kaupandi senda rafræna miða með QR kóða
  • Gegn framvísun rafræna miðans samhliða skilríkjum fá hátíðargestir armbönd á hátíðarsvæði
  • Armbönd eru sett á handhafa á hátíðarsvæði, ekki er hægt að fá armbönd afhent í lausu
  • Hátíðarhaldarar áskilja sér rétt til að óska eftir framvísun skilríkja hvenær sem er á meðan hátíð stendur
  • Miðar og armbönd einstaklinga undir 18 ára aldri verða gerð ógild og verða ekki endurgreidd
  • Ekki er hægt að breyta nöfnum á rafrænum miðum
  • Hægt er að fara fram á endurgreiðslu á miðakaupum sem gerð hafa verið í gegnum vefsíðu Kótelettunar í allt að 14 daga frá kaupum. Þetta á hinsvegar ekki við um beiðnir um endurgreiðslur sem berast þegar minna en 14 dagar eru í auglýstan viðburð.

Dagskrá Kótelettunnar Music Festival verður kynnt á Instagram og Facebook fram að hátíð.
Hlökkum til að sjá þig á Kótelettunni 2025!